Lýsing
Ertu í stöðugri baráttu við aukakílóin? Sveiflastu milli þess að halda í við þig og missa tökin á mataræðinu? Fyllistu vonleysi þegar þú ferð aftur í sama farið?
Fjölmargir eru í þessum sporum þrátt fyrir dugnað og löngun til að grennast. Í samfélaginu er hvatt til síaukinnar neyslu sem kemur sér illa því ásóknin í orkuríka fæðu er okkur eðlislæg. Þessi þörf magnast þegar við neitum okkur um mat í þeim tilgangi að grennast.
Með hugrænni atferlismeðferð má rjúfa vítahring megrunar og stjórnleysis með því að tileinka sér hugarfar og venjur sem markast af skilningi á þörfum líkamans. Það stuðlar að betri þyngdarstjórnun, meiri vellíðan og sátt við eigin líkama. Hugarfarið er gleymda vopnið í baráttunni en jafnframt það öflugasta.
Sóley Dröfn Davíðsdóttir er forstöðusálfræðingur Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Hún hefur lokið sérnámi í hugrænni atferlismeðferð og er með sérfræðingsviðurkenningu í klínískri sálfræði. Hún hefur áður sent frá sér bækurnar Náðu tökum á kvíða, fælni og áhyggjum, Náðu tökum á félagskvíða og Náðu tökum á þunglyndi.