Næsti hópur hefst þriðjudaginn 20. ágúst 2024, frá 15:00 til 17:00.
Um hópmeðferðina
Um er að ræða 11 skipta hópmeðferð þar sem unnið er markvisst að því að draga úr kvíða og óöryggi í félagslegum aðstæðum og í samskiptum með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Stuðst er við bók um félagsfælni sem Sóley D. Davíðsdóttir sálfræðingur hefur skrifað (innifalin í meðferðarkostnaði) og meðferðaráætlun sem komin er áralöng reynsla af og borið hefur góðan árangur (sjá árangursmælingu hér).
Fyrirkomulag og kostnaður:
Hópmeðferðin fer fram í 8-10 manna hóp og mun hópurinn hittast vikulega í tvo tíma í senn, í húsnæði Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Áður en meðferð hefst hitta sálfræðingar KMS sérhvern þátttakanda í einstaklingsviðtali þar sem vandinn er kortlagður og lagt mat á hvort meðferðarúrræðið muni henta viðkomandi eða hvort önnur úrræði muni koma að meira gagni.
Einstaklingsviðtal er ekki innifalið í meðferðarkostnaði (kostar 20.000kr) og er þar um að ræða sálfræðilegt mat og kortlagningu á vandanum. Þátttaka í þessari 22 klst hópmeðferð kostar 109.000 krónur.
Ath. Sjúkrasjóðir stéttarfélaga hafa komið að niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu.
Skráning og frekari upplýsingar
Smelltu hér ef þú hefur áhuga á að bóka einstaklingsviðtal fyrir þessa hópmeðferð. Vinsamlegast tilgreindu í dálkinum skilaboð að þú óskir eftir þessari tilgreindu meðferð.
Hér má finna nánari upplýsingar um félagsfælni. Ef þörf er á frekari upplýsingum um hópmeðferðina má hafa samband við Kvíðameðferðarstöðina í síma 534-0110 (milli kl. 9-12) eða senda tölvupóst á kms@kms.is