soley og sigurbjörg

Kvíðameðferðarstöðin er sérhæfð meðferðarstöð þar sem boðið er upp á hugræna atferlismeðferð við kvíða og skyldum vandkvæðum fyrir fullorðna. Meðferðin er ýmist veitt í einstaklingsviðtölum eða hópmeðferð eftir því sem við á. Sálfræðingar  Kvíðameðferðarstöðvarinnar starfa saman í teymi og njóta handleiðslu á störf sín frá innlendum og erlendum sérfræðingum. Þetta er gert til að tryggja gæði þeirrar meðferðar sem veitt er. Starfsmönnum Kvíðameðferðarstöðvarinnar hefur fjölgað jafnt og þétt frá árinu 2007 er Sóley D. Davíðsdóttir, Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir og Þröstur Björgvinsson stofnuðu fyrirtækið. Sóley og Sigurbjörg stýra fyrirtækinu nú og starfa  11 sálfræðingar við stöðina auk ritara, sálfræðinema og annarra sem að rekstrinum og einstökum meðferðarúrræðum koma. Samstarfs gætir við sálfræðisvið Háskóla Íslands með tilliti til rannsókna og þjálfun sálfræðinema. Nokkrir sálfræðinemar frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík hljóta þjálfun sína árlega við Kvíðameðferðarstöðina. Árangur þeirrar meðferðar sem fer fram við Kvíðameðferðarstöðina er mældur þannig að unnt sé að fylgjast með meðferðarárangri og eru árangursmælingar fyrir nokkur hópmeðferðarúrræði  birt á heimasíðunni.