Ekki er komin dagsetning á næsta hóp en áhugasamir geta sent tölvupóst á kms@kms.is og óskað eftir hópmeðferðinni. Hefðbundin hópmeðferð við félagskvíða er í boði eftir sem áður.
Um meðferðina
Kvíðameðferðarstöðin (KMS) hefur síðastliðin tíu ár boðið upp á gagnreynda hópmeðferð í hugrænni atferlismeðferð við félagsfælni. Meðferðin samanstendur af 11 vikulegum tveggja klukkustunda meðferðartímum sem fer fram í 12 manna hópum. Niðurstöður rannsókna benda til að meðferðin sé árangursrík.
Nú býðst fólki að fá sambærilega meðferð á einungis fjórum dögum. Á KMS hefur fjögurra daga meðferð verið reynd við annars konar kvíðavanda og lofa niðurstöður þeirrar meðferðar góðu. Kostir þess að veita meðferð á svo skömmum tíma eru margvíslegir en vísbendingar eru um að búast megi við skjótari árangri en ella.
Fyrirkomulag og kostnaður:
Hópmeðferðin fer fram á Kvíðameðferðarstöðinni í 6-8 manna hóp og mun hópurinn hittast í fjóra samfellda daga. Meginmarkmið meðferðar er að hjálpa fólki að fá nýja sýn á vanda sinn og að nálgast hann á nýjan hátt. Áður en meðferð hefst hitta sálfræðingar KMS hvern og einn þátttakanda í einstaklingsviðtali þar sem vandinn er kortlagður og mat lagt á hvort meðferðarúrræðið henti viðkomandi eða hvort önnur úrræði komi að meira gagni. Í fjögurra daga meðferðinni fær hver þátttakandi töluvert meiri tíma með sálfræðingi, einn á móti einum, heldur en í 11 vikna meðferð og er meðferðin því sambland af einstaklins- og hópmeðferð.
Ekki er komið á hreint hvað þessi meðferð muni kosta næst þegar hún fer af stað.
Skráning og frekari upplýsingar
Smelltu hér ef þú hefur áhuga á að bóka einstaklingsviðtal fyrir þessa hópmeðferð. Vinsamlegast tilgreindu í dálkinum skilaboð að þú óskir eftir þessari tilgreindu hópmeðferð.
Hér má finna nánari upplýsingar um félagsfælni. Ef þörf er á frekari upplýsingum um hópmeðferðina má hafa samband við Kvíðameðferðarstöðina í síma 534-0110 milli kl. 9 og 12 alla virka daga eða senda tölvupóst á kms@kms.is