Það er ánægjulegt að segja frá því að þann 3. og 4. febrúar verður boðið upp á námskeiðið ,,Leikni í samskiptum”. Á námskeiðinu leiða þau Benedikt Erlingsson og Sóley D. Davíðsdóttir yfirsálfræðingur við Kms saman hesta sína og fjalla um samskipti frá mismunandi sjónarhornum. Sóley fer yfir eiginleika góðra
samskipta, tæpir á helstu gryfjum í tjáskiptum og ræðir áhrif hugarfars og væntinga til annarra. Hún kemur inn á leiðir til að bæta tengsl, ná sínu fram, setja mörk og leysa ágreining. Benedikt fjallar um samskipti út frá einni af frumstæðustu hvötum mannsins, stöðutöku. Í því samhengi fer hann yfir hvernig rödd, líkamsbeiting, staða í rými og orðaval verði að valdatækjum í hinum frumstæða, og oft ómeðvitaða, leik sem við stöndum í daglega. Opnað hefur verið fyrir skráningu.
Nýtt námskeið í samstarfi við Benedikt Erlingsson leikara og leikstjóra
Fréttir og tilkynningar


