Greiðsluþátttaka vegna sálfræðikostnaðar

25. maí, 2026
Fréttir
Fréttir og tilkynningar

Það er sönn ánægja að segja frá því að nú er Sóley Dröfn Davíðsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði farin að taka á móti skjólstæðingum í gegnum rammasamning við Sjúkratryggingar Íslands. Það merkir að nú geta þeir sem eru með beiðni frá heimilislækni um sálfræðiþjónustu óskað eftir tíma hjá Sóleyju og SÍ tekur þátt í kostnaði vegna þeirra sálfræðitíma sem eru tilgreindir á beiðninni frá heimilislækninum. Svo unnt sé að fá greiðsluþátttöku verður beiðni frá lækni um sálfræðitíma að liggja fyrir.

Fleiri færslur