Fyrirkomulag einhverfugreininga við Kvíðameðferðarstöðina

2. júní, 2026
Fréttir
Fréttir og tilkynningar

Við KMS má fá mat á einkennum einhverfurófs, en slíkt mat getur breytt miklu og aukið sjálfsskilning til muna.


Skimun
Matið hefst á 90 mínútna skimunarviðtali hjá sálfræðingi eða aðstoðarmanni sálfræðings. Áður en það hefst fær fólk senda heim spurningalista sem mætt er með í skimunarviðtal. Listarnir skima fyrir einkennum einhverfu (að mati viðkomandi og aðstandenda), og tengdum vandamálum (t.d. ADHD, þunglyndi og þráhyggju- og áráttu). Í þessu viðtali er spurt út í einkenni einhverfurófs og lagt fyrir greiningarviðtal (MINI) sem metur einkenni helstu geðraskana. Undir lok skimunarviðtals, eða skömmu eftir viðtalið, er greint frá því hvort niðurstöður skimunarinnar bendi til einkenna á einhverfurófi og hvort ástæða sé til frekara mats, ef vilji er fyrir hendi. Skimunarviðtalið kostar sem nemur tveimur sálfræðitímum.


Greiningarviðtal
Stuðst er við tvenns konar greiningarviðtöl til mats á einkennum einhverfu við KMS og getur sá sem um ræðir valið hvort þeirra hann vill gangast undir. Annars vegar er notað ADI-R (Autism Diagnostic Interview-Revised), sem er þriggja tíma viðtal við náinn aðstandanda þess sem meta á, oftast móður eða föður. Sá sem metinn er, má gjarnan vera með í þessu viðtali óski hann þess. Í þessu viðtali ef farið ítarlega yfir þroskasögu og margvísleg dæmi fengin, sér í lagi við 4-5 ára aldurinn. Gott er að aðstandandi búi sig undir viðtalið með því að rifja upp helstu tímamót í þroska (stundum hjálpar að horfa á gamlar ljósmyndir og myndbönd), til dæmis hvenær viðkomandi fór að tala, ganga og lesa. Gagnlegt er einnig safna saman ummælum kennara og annarra fagaðila, ef slík eru til og koma með í viðtalið. Einnig getur komið til greina að fara í ACIA (Autistical Clinical Interview for Adults) sem tekur skemmri tíma í fyrirlögn en ADI-R, eða sem nemur tveimur tímum. Þetta viðtal er tekið við einstaklinginn sjálfan en ekki aðstandenda. ADI-R viðtalið er ítarlegra og þekktara en ACIA og því gagnlegra ef nýta á niðurstöðurnar til ákveðinna réttinda. ACIA er aftur á móti fljótlegri og ódýrari kostur, og gagnlegur þegar takmarkaðar upplýsingar fást úr æsku, og innsæi allgott í eigin hegðun. Það kostar sem nemur þremur sálfræðitímum að fara í ADI-R viðtalið en tveimur að fara í ACIA.

Skýrsla og niðurstöðufundur
Þverfaglegt greiningarteymi KMS tekur sameiginlegar ákvarðanir um greiningar sem fyrir liggja og næstu skref. Þegar greiningu er lokið eru niðurstöðurnar teknar saman í ítarlega skýrslu sem afhent er á hálftíma niðurstöðufundi. Þar hittir sá sem um ræðir sálfræðinginn aftur, farið er yfir skýrsluna og færi gefin á fyrirspurnum og samtali um næstu skref. Niðurstöðufundur með skýrslu kostar sem nemur þremur sálfræðitímum.

Hægt er að bóka tíma hér https://kms.is/hafa-samband/

Fleiri færslur