Greiningar
Hjá okkur má fá skimun og greiningu á einkennum ADHD og einhverfu. Einnig má óska eftir taugasálfræðimati, til dæmis vegna gruns um heilabilun, og eins má óska eftir fyrirlögn greindarprófs.
ADHD
Skimun – 50.000 krónur
Innifalið er 100 mínútna skimunarviðtal hjá sálfræðingi eða aðstoðarmanni sálfræðings. Áður en það hefst fær fólk senda heim spurningalista sem mætt er með í skimunarviðtal. Listarnir skima fyrir einkennum ADHD (að mati viðkomandi og aðstandenda), og tengdum vandamálum (t.d. kvíða, þunglyndi og einhverfu). Í skimunarviðtalinu er spurt út í einkenni ADHD og lagt fyrir greiningarviðtal (MINI) sem metur einkenni helstu geðraskana. Undir lok skimunarviðtals, eða skömmu eftir viðtalið, er greint frá því hvort niðurstöður skimunarinnar bendi til einkenna ADHD og hvort ástæða sé til frekara mats, ef vilji er fyrir hendi.
Greiningarviðtal og úrvinnsla spurningalista – 62.500
Í greiningarviðtali, sem tekur um tvær klukkustundir, er farið yfir ADHD-hluta K-SADS (Kiddie Schedule for Affective Disorders and Schizophrenia) sem metur ítarlega hvort einkenni ADHD séu til staðar.
Skilafundur og afhending skýrslu – 75.000
Á skilafundi, sem tekur allt að 50 minútur, er farið yfir niðurstöður greiningar og næstu skref rædd. Ef viðkomandi nær ekki viðmiðum um ADHD er rætt hvað annað geti valdið þeim óþægindum sem um ræðir.
Þverfaglegt greiningarteymi kemur að greiningum og áskilur geðlæknir teymisins sér rétt til að meta hvort, og með hvað hætti huga beri að lyfjagjöf. Ekki er sjálfsgefið, þótt fólk nái viðmiðum um ADHD, að geðlæknir telji þörf á lyfjameðferð á þessu sviði, enda geta fleiri möguleikar komið til greina.
Skimun og greining ADHD kostar alls 187.500. Einhver bið er eftir því að komast að í slíkri greiningu hjá okkur.
EINHVERFA
Skimun – 50.000 krónur
Innifalið er 100 mínútna skimunarviðtal hjá sálfræðingi eða aðstoðarmanni sálfræðings. Áður en það hefst fær fólk senda heim spurningalista sem mætt er með í skimunarviðtal. Listarnir skima fyrir einkennum einhverfu (að mati viðkomandi og aðstandenda), og tengdum vandamálum (t.d. ADHD, þunglyndi og þráhyggju- og áráttu). Í skimunarviðtalinu er spurt út í einkenni einhverfurófs og lagt fyrir greiningarviðtal (MINI) sem metur einkenni helstu geðraskana. Undir lok skimunarviðtals, eða skömmu eftir viðtalið, er greint frá því hvort niðurstöður skimunarinnar bendi til einkenna á einhverfurófi og hvort ástæða sé til frekara mats, ef vilji er fyrir hendi.
Greiningarviðtal – 75.000 (ADI-R) eða 50.000 (ACIA)
Við styðjumst við tvenns konar greiningarviðtöl til mats á einkennum einhverfu og getur sá sem um ræðir valið hvort þeirra hann vill gangast undir. Annars vegar er notað ADI-R (Autism Diagnostic Interview-Revised), sem er þriggja tíma viðtal við náinn aðstandanda þess sem meta á, oftast móður eða föður. Sá sem metinn er, má gjarnan vera með í þessu viðtali óski hann þess. Í þessu viðtali ef farið ítarlega yfir þroskasögu og margvísleg dæmi fengin, sér í lagi við 4-5 ára aldurinn. Gott er að aðstandandi búi sig undir viðtalið með því að rifja upp helstu tímamót í þroska (stundum hjálpar að horfa á gamlar ljósmyndir og myndbönd), til dæmis hvenær viðkomandi fór að tala, ganga og lesa. Gagnlegt er einnig safna saman ummælum kennara og annarra fagaðila, ef slík eru til og koma með í viðtalið. Einnig getur komið til greina að fara í ACIA (Autistical Clinical Interview for Adults) sem tekur skemmri tíma í fyrirlögn en ADI-R, eða sem nemur tveimur tímum. Þetta viðtal er tekið við einstaklinginn sjálfan en ekki aðstandenda. ADI-R viðtalið er ítarlegra og þekktara en ACIA og því gagnlegra ef nýta á niðurstöðurnar til ákveðinna réttinda. ACIA er aftur á móti fljótlegri og ódýrari kostur, og gagnlegur þegar takmarkaðar upplýsingar fást úr æsku, og innsæi allgott í eigin hegðun.
Úrvinnsla matstæja, skrif á skýrslu og skilafundur – 100.000
Þverfaglegt greiningarteymi KMS tekur sameiginlegar ákvarðanir um greiningar sem fyrir liggja og næstu skref. Þegar greiningu er lokið eru niðurstöðurnar teknar saman í ítarlega skýrslu sem afhent er á hálftíma niðurstöðufundi. Þar hittir sá sem um ræðir sálfræðinginn aftur, farið er yfir skýrsluna og færi gefin á fyrirspurnum og samtali um næstu skref.
Einhverfugreining kostar alls 225.000 ef valið er ADI-R-matsviðtal og 200.000 ef valið er ACIA-matsviðtal.
Enn sem komið er hægt að komast tiltölulega fljótt að í einhverfugreiningu hjá okkur.
TAUGASÁLFRÆÐIMAT OG FYRIRLÖGN GREINDARPRÓFS
Kostnaður við taugasálfræðimat fer eftir umfangi matsins.




