Náðu tökum á áhyggjum -skráning hafin!

9. september, 2026
Fréttir
Fréttir og tilkynningar

Næsta hópmeðferð við áhyggjuvanda hefst 8. október næst komandi. Um er að ræða 9 vikna hópmeðferð ætluð fólki sem hefur hefur tilhneigingu til að ofhugsa hluti og er gjarnt á þrálátar áhyggjur af margvíslegum hlutum með tilheyrandi kvíða og líkamlegum spennueinkennum. Áhersla er á að kenna fólki markvisst að grípa inn í vítahring áhyggja og auka þol fyrir óvissu. Hægt er að lesa meira um þetta úrræði hér: https://kms.is/hopmedferd/nadu-tokum-a-ahyggjum-hopmedferd-vid-ahyggjuvanda/ og hægt er að skrá sig hér: https://kms.is/hafa-samband/

Fleiri færslur