Frí nemaviðtöl í boði

Forsíða / Fréttir / Frí nemaviðtöl í boði

Ákveðið hefur verið að bjóða upp á frí viðtöl hjá sálfræðinemum Kvíðameðferðarstöðvarinnar næsta mánuðinn. Um er að ræða áhugasaman og metnaðargjarnan hóp nema sem er langt kominn með sálfræðinámið og starfar undir handleiðslu reyndra sálfræðinga. Hver og einn getur fengið tvö frí viðtöl hjá nema sem nýta þarf fyrir 15. október. Kjósi fólk að halda áfram hjá nemunum  fást viðtölin svo á 8.000 krónur sem er helmingur þess sem viðtölin kosta venjulega.