Árangur meðferðar þráhyggju og áráttu (OCD) við Kvíðameðferðarstöðina

21. apríl, 2026
Fréttir
Fréttir og tilkynningar

Það er ánægjulegt frá því að segja að við vorum að fá birta grein í tímaritinu The Cognitive Behaviour Therapist um tólf mánaða eftirfylgd af fjögurra daga meðferðinni sem við veitum við þráhyggju og áráttu (OCD). Að ári liðnu frá meðferð hafa 84% svarað meðferðinni og rúm 67% í bata. Einnig hefur dregið úr kvíða, þunglyndi og færniskerðingu vegna vandans. Athygli vekur að rúmlega helmingur þeirra sem ekki nær fullnægjandi árangri fyrst eftir meðferð er á betri stað ári síðar. Hér má lesa greinina í heild sinni: https://www.cambridge.org/core/journals/the-cognitive-behaviour-therapist/article/bergen-4day-treatment-for-ocd-in-iceland-12month-followup/1AC9C97D975A06FFB69E06D3A17F1F33

Fleiri færslur