Kvíðameðferðarstöðin í samstarfi við Háskóla Íslands stendur að rannsókn á eiginleikum tveggja spurningalista sem meta ælufælni.

Auglýst er eftir þátttakendum í rannsóknina.

Hverjir geta tekið þátt í rannsókninni og hvaða reglur gilda um þátttöku?
Allir sem náð hafa 18 ára aldri geta tekið þátt í rannsókninni, óháð því hvort þeir hafa einhvertíman talið ælufælni vera vandamál hjá sér eða ekki. Ekki er greitt fyrir þátttöku.

Hvað er gert í rannsókninni?
Markmið rannsóknarinnar er að kanna eiginleika tveggja spurningalista sem meta einkenni ælufælni. Einnig verður kannað hvort tengsl séu á milli einkenna ælufælni og annarra skildra vanda og verður það gert með sjálfsmatsspurningalistum sem svarað er á netinu. Það tekur þátttakendur um 10 til 12 mínútur að svara öllum spurningunum.

Hvernig tek ég þátt?

Slóð á spurningakönnunina er hér. Á forsíðu hennar eru nánari upplýsingar um rannsóknina og aðstandendur hennar.

Auglýsing samfélagsmiðlar og KMS pdf