Okkur er sönn ánægja að greina frá því að Sóley Dröfn Davíðsdóttir yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina varði nýverið doktorsritgerðina sína við sálfræðideild Háskólans í Bergen. Ritgerðin ber heitið Bergenska fjögurra daga meðferðin við þráhyggju-árátturöskun og sértækri fælni við uppköst á Íslandi: Aðlögun og árangur í klínísku starfi (e. The Bergen 4-Day Treatment for OCD and Emetophobia in Iceland: Adaptation and Clinincal Effectiveness).
Andmælendur voru þau DAvid Veale, prófessor við South London and Maudsley NHS Trust og Nightingale Hospital í London, og Kitty Dahl, sérfræðingur í sálfræði og rannsakandi við Regionsenter for barn og unges psykiske helse, Øst og Sør. Aðalleiðbeinandi var Lars Göran Öst, prófessor emeritus. Meðleiðbeinendur voru prófessorarnir Gerd Kvale, Bjarne Hansen og Kristen Hagen.
Markmið doktorsverkefnisins var að kanna árangur bergengsku fjögurra daga meðferðinnar við þráhyggju og áráttu (OCD) í almennu klínísku starfi á Íslandi og hvort aðlaga mætti meðferðin að ælufælni/sértækri fælni við uppköst.
Við ósku Sóleyju innilega til hamigju með þennan glæsilega áfanga!


