Samfélagsmiðlar, netnotkun og geðheilsa

20. febrúar, 2026
Fréttir
Fréttir og tilkynningar

Í dag hélt Sóley D. Davíðsdóttir sálfræðingur erindi fyrir Verkís um áhrif samfélagsmiðla og netnotkunar á geðheilsu sem er spurning sem margir hafa velt fyrir sér. Þetta er umfjöllunarefni sem á sér margar hliðar og rannsóknum ber ekki alveg saman um hver áhrifin eru. Við leggjum til að fólk geri litla tilraun sem felst í því að eyða út forritum á borð við instagram, facebook og tiktok úr símunum sínum og slökkvi á tölvupóststilkynningum í eina eða tvær vikur til þess að finna á eigin skinni hvaða áhrif slík notkun hefur á líðan og virkni 🙂

Fleiri færslur