Nú er hægt að fara tvær leiðir til þess að bóka tíma hjá sálfræðingum Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Algengasta leiðin er að óska eftir tíma hér á heimasíðunni með því að styðja á hnappinn ,,Bóka tíma” https://kms.is/hafa-samband/ og fylla út umbeðnar upplýsingar. Með því móti er hægt að óska sértaklega eftir aðstoð við tilteknum vanda eða eftir tilteknu úrræði eins og hópmeðferð af einhverjum toga. Hin leiðin er að bóka tíma í gegnum Noona appið https://noona.is/kvidamedferdarstodin#people en nokkrir sálfræðingar stöðvarinnar (ekki allir) bjóða upp á þessa leið. Við hvetjum fólk til þess að kynna sér sérsvið sálfræðinganna áður en þessi leið er farin til að bóka tíma til að auka líkurnar á að fá sálfræðing við hæfi miðað við þann vanda sem um ræðir.
Nú er líka hægt að bóka tíma í gegnum Noona
Fréttir og tilkynningar


