Greiðsluþátttaka vegna sálfræðitíma

6. mars, 2026
Fréttir
Fréttir og tilkynningar

Það er ánægjulegt að segja frá því að nú er Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir sálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina komin með aðild að rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands og sálfræðinga. Það merkir að nú geta þeir sem eru með beiðni frá heimilislækni um sálfræðiþjónustu óskað eftir tíma hjá Sigurbjörgu og SÍ tekur þátt í kostnaði vegna þeirra sálfræðitíma sem eru tilgreindir á beiðninni frá heimilislækninum. Svo unnt sé að fá greiðsluþátttöku verður beiðni frá lækni um sálfræðitíma að liggja fyrir. Sigurbjörg hefur lagt sig eftir meðferð við ofsakvíðaköstum, víðáttufælni, þráhyggju og áráttu og ýmis konar sértækri fælni.

Fleiri færslur