ADHD í nýju ljósi – aukinn skilningur og sjálfsmildi
Fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir fullorðna með greint eða ógreint ADHD

Um hópmeðferðina
ADHD er þrálátur vandi sem dregur stundum úr sjálfstrausti enda veldur vandinn usla á ýmsum sviðum lífsins. Með sálfræði meðferð má finna leiðir til að draga úr hömlun ADHD einkenna, bæta líðan og sjálfstraust. Á þessu námskeiði verður veitt fræðsla um einkenni ADHD á fullorðinsárum, kenndar leiðir hugrænnar atferlismeðferðar til að vinna á einkennum og styrkja sjálfsmyndina.
Meðferðin er tvískipt, annars vegar fræðsla um ADHD, hver einkennin eru, hvernig koma þau fram á mismunandi hátt og hvaða hamlandi áhrif þau geta haft á mikilvæg svið lífsins. Sjónum er einnig beint að styrkleikum og mögulegum kostum þess að vera með ADHD. Hins vegar rýnum við í hvaða áhrif það getur haft á sjálfsmatið að alast upp og lifa með greint eða ógreint ADHD. Hvernig það getur mótað þá skoðun sem við höfum á okkur sjálfum, hvernig við við hegðum okkur og fleira slíkt. Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu og skilning á ADHD og færa fólki verkfæri og tól til að takast á við ýmsa erfiðleika sem geta fylgt því að vera með ADHD.
Hópurinn er ætlaður fyrir fólk (18 ára og eldri) sem er með greiningu á ADHD eða hefur grun um að vera með ADHD. Ekki þarf að ligga fyrir formleg greining á ADHD til þess að sækja námskeiðið, aðeins telja slík einkenni séu til vandræða.
Fyrirkomulag
Um er að ræða vikulega, tveggja klukkustunda hópmeðferðartíma, átta skipti í heildina. Námskeiðið er á fyrirlestraformi og umræðna. Þátttakendur fá verkefni til að vinna á milli á tíma.
Verð
96.000 -nú á tilboðsverði alls 69.000.-
Tímasetning
Þriðjudagurinn 3. mars 2026, kl. 15:00 – 17:00