Leikni í samskiptum
-námskeið með Benedikti Erlingssyni leikara og leikstjóra og Sóleyju D. Davíðsdóttur sérfræðingi í klínískri sálfræði og yfirsálfræðingi við Kvíðameðferðarstöðina

Um hópmeðferðina
Á námskeiðinu leiða þau Benedikt og Sóley saman hesta sína og fjalla um samskipti frá mismunandi sjónarhornum, sem þó eiga margt sammerkt.
Sóley fer yfir eiginleika góðra samskipta, tæpir á helstu gryfjum í tjáskiptum og ræðir áhrif hugarfars og væntinga til annarra. Hún kemur inn á leiðir til að bæta tengsl, ná sínu fram, setja mörk og leysa ágreining.
Benedikt fjallar um samskipti út frá einni af frumstæðustu hvötum mannsins, stöðutöku. Í því samhengi fer hann yfir hvernig rödd, líkamsbeiting, staða í rými og orðaval verði að valdatækjum í hinum frumstæða, og oft ómeðvitaða, leik sem við stöndum í daglega.
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur verði meðvitaðri um eigin samskiptamynstur, læsari á aðferðir annarra og leiknari í samskiptum.
Fyrirkomulag
Um er að ræða 4 klst námskeið á formi fyrirlestra og léttra æfinga fyrir þá sem kjósa. Þátttakendur fá lesefni um samskipti.
Verð
30.000.-
Tímasetning
3. og 4. febrúar kl. 17.00-19.00 í húsnæði Kvíðameðferðarstöðvarinnar