Þegar leitað er til Kvíðameðferðarstöðvarinnar er fólki fyrst boðið að koma í greiningarviðtal. Slíkt viðtal er mikilvægur undanfari allrar meðferðar hvort sem um ræðir einstaklingsviðtöl eða hópmeðferð. Í þessu viðtali er lagt mat á vandann og skoðað hvað best sé að gera. Venjulega er fólk beðið að mæta hálftíma áður en greiningarviðtal hefst til að fylla út spurningalista. Þennan spurningalista má fá hjá ritara í afgreiðslu Kvíðameðferðarstöðvarinnar eða hægt að nálgast hann hér fyrir neðan ef fólk kýs að svara honum heima áður en það mætir. Í spurningalistanum er fólk beðið að skrá bakgrunnsupplýsingar, svo sem nafn og símanúmer, og spurt út í ýmis einkenni sem tengst geta kvíða. Góð kortlagning í upphafi stuðlar að því að fólk fái meðferð við hæfi og gerir það að verkum að greiningarviðtalið verður markvissara.
Í greiningarviðtali kortleggur sálfræðingur þann vanda sem leitað er aðstoðar við í fimmtíu (stundum sextíu) mínútna viðtali. Þetta viðtal kostar á bilinu 21.000-22.000 krónur. Greiningarviðtal hjá nema kostar helming þess sem það kostar að fara til sálfræðings hjá KMS hafir þú óskað eftir slíku. Stundum tekur kortlagningin meira en einn tíma. Þessi kortlagning er mikilvæg til að unnt sé að átta sig á vandanum og hvernig best sé að taka á honum. Undir lok matsviðtals fær fólk álit sálfræðingsins, hvers eðlis vandinn sé og hvað sé best að gera. Það getur verið að sálfræðingur mæli með einstaklingsviðtölum hjá sér eða öðrum til að vinna á vandanum. Sérhæfing er eilítið misjöfn meðal sálfræðinga Kvíðameðferðarstöðvarinnar og í sumum tilvikum kann sálfræðingur að mæla með að meðferð eigi sér stað hjá öðrum en honum.
Hafðu hugfast að sálfræðingar stöðvarinnar hafa þagnarskyldu og farið er með allar upplýsingar sem þú veitir sem trúnaðarupplýsingar, og þær varðveittar sem slíkar. Þú þarft ekki að veita neinar upplýsingar sem þú ekki vilt í greiningarviðtali, en því ítarlegri upplýsingar sem fást um það sem hrjáir þig, því auðveldara er að aðstoða þig við að ná tökum á vandanum. Algengt er að fólk kvíði fyrsta viðtali og finnist erfitt að greina ókunnugri manneskju frá erfiðleikum sínum. Þetta er eðlilegt og oftast léttir fólki þegar það er búið í viðtalinu.
Hér að neðan má sjá meðferðarsamning sem sálfræðingur og skjólstæðingur Kvíðameðferðarstöðvarinnar gera með sér í upphafi meðferðar en samningurinn lýtur að trúnaði, ábyrgð, mætingu og greiðslufyrirkomulagi. Þessum samningi fylgir jafnframt þeir spurningalistar sem fólk er beðið um að fylla út fyrir greiningarviðtal. Við hvetjum fólk til þess að prenta samninginn og spurningalistana út og svara þeim áður en mætt er í bókað greiningarviðtal, að öðrum kosti að mæta 30 mínútur fyrir bókaðan tíma í greiningarviðtal til þess að svara spurningalistunum, lesa samninginn vel yfir og undirrita.
Meðferðarsamningur og spurningalistar við komu