Afmörkuð fælni
Afmörkuð fælni er ofsalegur ótti við tiltekin fyrirbæri eða aðstæður eins og dýr, lokuð rými eða sprautur. Fólk finnur fyrir skyndilegri skelfingu þegar það mætir því sem það óttast, þótt það geri sér grein fyrir að óttinn er meiri en eðlilegt er. Fólk sniðgengur þessar aðstæður, flýr af hólmi eða þraukar þrátt fyrir mikinn kvíða. Sá sem fælist geitunga gæti til dæmis hent frá sér öllu og tekið til fótanna þegar hann verður var við geitung, stirðnað upp eða forðast alfarið að dvelja utandyra þar sem geitungar gætu verið. Afmörkuð fælni er líklega algengasta kvíðaröskunin, og hrjáir í kringum 12% fólks. Þetta er jafnframt sú kvíðaröskun sem fæstir leita sér aðstoðar við, ef til vill vegna þess að mörgum tekst að hagræða lífi sínu þannig að þeir séu sjaldan útsettir fyrir það sem þeir óttast. Það er synd hve fáir leita sér aðstoðar þar sem meðferðarárangur við afmarkaðri fælni er sérlega góður og má oft ná tökum á vandanum á örfáum klukkustundum. Afmörkuð fælni er almennt algengari meðal kvenna en karla, þó er munurinn mismikill eftir tegund fælni. Minnstur er munurinn milli kynja þegar kemur að lofthræðslu, blóð- og sprautufælni. Dýrafælni og blóðfælni hefjast oftast í æsku en aðstæðubundin fælni hefst oft ekki fyrr en seint á unglingsárum eða snemma á fullorðinsárum.
Til eru nokkrir flokkar afmarkaðrar fælni, sjá upptalningu hér að neðan. Blóðfælni sker sig frá öðrum fælnitegundum að því leyti að þar gætir tilhneigingar til að falla í yfirlið eða komast nærri því að falla í yfirlið. Blóðfælni er einnig ólík öðrum tegundum fælni sökum þess að slík fælni hefur mesta tilheigingu til að ganga í erfðir. Afmarkaða fælni má hins vegar almennt aðeins skýra að þriðja hluta til erfða. Í flestum tilfellum hefur fólk lært að óttast tilteknar aðstæður. Fólk kann að hafa orðið fyrir slæmri reynslu af því fyrirbæri sem um ræðir, orðið vitni að slæmri reynslu einhvers annars eða óttinn lærst gegnum varnaðarorð annarra.
Flokkar afmarkaðrar fælni
Afmörkuð fælni skiptist í fjóra lykilflokka eins og sjá má hér að neðan. Flestir sem glíma við afmarkaða fælni fælast fleiri en eitt fyrirbæri, oftast innan sama flokks. Jafnframt eru aðrar kvíðaraskanir algengar í þessum hópi.
Dýrafælni: Hundar, kettir, mýs, fuglar, snákar, skordýr o.fl.
Náttúru-, umhverfisfælni: Hæðir, myrkur, vatn, þrumuveður o.s.frv.
Aðstæðubundin fælni: Keyra (t.d. í vondu veðri), ferðast með lest, rútu eða flugvél, lokuð eða lítil rými eins og lyftur, lítil glugglaus herbergi, göng, fjölmennir staðir o.fl.
Blóð-, sprautu-, slysafælni: Sjá blóð, horfa á skurðaðgerð, fá sprautu, fara til læknis, tannlæknis, á spítala o.fl.
Önnur fælni: Allar aðrar tegundir fælni, til dæmis fælni tengd því að kasta upp, kafna, ákveðinni tónlist, nýjum mat, blöðrum, snjó eða skýjum
Hér að neðan má finna ítarefni um nokkrar tegundir afmarkaðrar fælni.
Ef þú telur þig vera glíma við afmarkaða fælni, hafðu þá samband við okkur hér.