Útgáfuhóf vegna sjálfshjálparbókar um kvíða

Forsíða / Fréttir / Útgáfuhóf vegna sjálfshjálparbókar um kvíða

Mánudaginn 10. nóvember kemur út sjálfshjálparbólk um kvíða sem nefnist “Náðu tökum á kvíða, fælni og áhyggjum.

Bodskort

Útgáfuhófið er haldið í bókabúð Eymundssonar á Skólavörðustíg milli 17 og 19 þennan dag og eru allir velkomnir.

Bókin á erindi til allra sem vilja draga úr kvíða, streitu og áhyggjum í daglegu lífi. Stór hluti fólks finnur reglulega fyrir kvíða og þriðji hver maður glímir við kvíðavandamál. Í bókinni eru veitt fljótvirk ráð á sviði hugrænnar atferlismeðferðar sem borið hefur sérlega góðan árangur við kvíða. Í fyrri köflum bókarinnar er veitt fræðsla um kvíðaviðbragðið og helstu birtingarmyndir kvíða, og gefst lesendum færi á að kortleggja kvíðann hjá sér. Farið er yfir viðbrögð sem viðhalda kvíða og útskýrt ríkulega með dæmum. Í síðari köflum bókarinnar eru veittar nákvæmari leiðbeiningar um hvernig sigrast megi á algengustu formum kvíða, svo sem kvíðaköstum, áhyggjum, þráhyggju og áráttu, fælni og félagskvíða.

Sóley D. Davíðsdóttir er höfundur bókarinnar en hún er jafnframt forstjóri Kvíðameðferðarstöðvarinnar og formaður félags um hugræna atferlismeðferð. Hún hefur lokið sérnámi í hugrænni atferlismeðferð og sérfræðingsviðurkenningu í klínískri sálfræði.

Bókin kostar 3.700 ef hún er keypt við Kvíðameðferðarstöðina og bætast við 200 krónur ef bókin er send heim. Bókina má kaupa hér