Loksins er bókin sem verið hefur í skrifum Sóleyjar D. Davíðsdóttur sálfræðings við Kvíðameðferðarstöðina komin út og til sölu við KMS (og í helstu bókabúðum landsins).

Um er að ræða sjálfshjálparbók við félagskvíða sem afar margir finna fyrir og lýsir sér í feimni, óöryggi og kvíða í samskiptum eða þegar eitthvað er gert í ásýnd annarra, til dæmis ræða haldin eða leikið á tónleikum. Bókin er byggð á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og hvílir á traustum grunni rannsókna. Í bókinni má læra með markvissum hætti að breyta viðbrögðum sem ala á félagskvíða. Um leið hjálpar bókin fólki að efla sjálfstraust sitt og bæta samskipti, kynnast öðrum og eignast félaga. Hún er einnig gagnleg fyrir alla sem vilja styðja aðra sem eiga við slík vandamál að stríða, svo sem foreldra barna sem kljást við félagskvíða.

Sóley Dröfn Davíðsdóttir er sálfræðingur og forstjóri Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Hún hefur lokið sérnámi í hugrænni atferlismeðferð og er með sérfræðingsviðurkenningu í klínískri sálfræði. Sóley hefur sérhæft sig í meðhöndlun kvíðaraskana og þróað ásamt samstarfsfélögum sínum við KMS öfluga meðferð við félagskvíða. Árið 2014 sendi hún frá sér bókina Náðu tökum á kvíða, fælni og áhyggjum sem nú hefur verið endurútgefin.

Bókin kostar 3.990. Kaupa bókina