Hafa má samband við okkur með því að hringja í síma 534-0110 milli 09.00 og 12:00 á virkum dögum eða senda tölvupóst á kms@kms.is.  Panta má  viðtalstíma með því að smella á ,,Panta tíma” hér til hliðar, skrá nafn og símanúmer og senda beiðnina inn. Þér býðst einnig að gefa stutta lýsingu á vandanum sem þú vilt fá aðstoð með, ef þú vilt. Sálfræðingar Kvíðameðferðarstöðvarinnar hafa mismunandi sérhæfingu og getur stutt lýsing á vandanum aukið líkur á að þú fáir sálfræðing sem hentar þér.

Reynt er að svara skilaboðum og tölvupósti eins fljótt og auðið er, en athugaðu að einhverjir dagar geta liðið frá því að þú hefur samband og þar til hringt er í þig og þér boðinn tími. Það er mikil eftirspurn eftir tímum við Kvíðameðferðarstöðina og kemur fyrir að 6-8 vikna bið myndist eftir viðtalstímum. Því hvetjum við fólk til að nýta tímana vel og afbóka viðtöl með sólarhrings fyrirvara, en að öðrum kosti þarf að greiða hálft viðtalsgjaldið.

Kvíðameðferðarstöðin er til húsa á Suðurlandsbraut 4, 5. hæð, 108 Reykjavík.